ELVA Golf býður kylfingum fría golfkennslu og þátttöku í þróun nýrrar íslenskrar golftækni
Kylfingum gefst nú kostur á að prófa kerfið endurgjaldslaust í Garðabæ og fá í staðinn tæknivædda golfkennslu og tækifæri á að vinna einkatíma.

ELVA Golf býður kylfingum að koma í höfuðstöðvar fyrirtækisins að Suðurhrauni 12C í Garðabæ og taka þátt í spennandi þróun á nýju íslensku greiningartæki. Markmiðið er að safna gögnum til að fínstilla ELVA kerfið, og í staðinn fyrir að slá nokkur högg fá þátttakendur golfkennslu sér að kostnaðarlausu.
Hvað er ELVA? ELVA er nýsköpun í golfheiminum, íslenskt greiningartæki sem nýtir 8 hágæðamyndavélar til að greina golfsveifluna í þrívídd (3D). Kerfið les og greinir hreyfingu líkamans af mikilli nákvæmni og skilar dýrmætum gögnum sem nýtast kylfingum gríðarlega vel til að bæta sveifluna sína. Mikil áhersla er lögð á persónuvernd; kylfingar geta sjálfir valið hvort þeir haldi áframhaldandi aðgangi að sínum mælingum eða hvort gögnunum verði eytt.
Skipulag hvers tíma:
- Tímalengd: Hver tími tekur um 25 mínútur.
- Í kerfinu: Þátttakandinn slær 20–25 högg með mismunandi kylfum, sem tekur um 10 mínútur.
- Kennsla (Endurgjaldslaus): Það sem eftir lifir af tímanum (um 15 mínútur) fær þátttakandinn fríða golfkennslu þar sem stuðst er við gögn úr ELVA kerfinu.
Glæsilegt happdrætti Allir sem taka þátt eiga möguleika á að vera dregnir út í happdrætti ELVA. Fimm heppnir þátttakendur munu fá 60 mínútna einkakennslu í ELVA kerfinu undir leiðsögn ELVA vottaðs golfkennara.
Hagnýtar upplýsingar:
- Bókunartímabil: 11. júní – 10. júlí.
- Staðsetning: Suðurhraun 12C, 210 Garðabær (Gengið inn hjá Geislatækni, þar sem tekið er á móti kylfingum í anddyrinu).
- Skráning: Skráning fer fram í gegnum QR kóða eða https://shorturl.at/G23mq
Kylfingar eru hvattir til að nýta sér þetta einstaka tækifæri til að bæta leikinn sinn samhliða því að leggja íslenskri nýsköpun lið.
Deila